Íslandsbanki hf.: Tilkynning um nýtingu innköllunarheimildar til eiganda víkjandi skuldabréfa að fjárhæð SEK 750,000,000, sem telja til viðbótareiginfjárþáttar 1 - ISIN: XS2390396427
2026-07-30 11:55:00
Íslandsbanki hf. (“útgefandi”) tilkynnir hér með öllum eigendum SEK 750,000,000, skuldabréfa með tímabundinni niðurfærslu (e. temporary write-down) með breytilegum vöxtum án lokagjalddaga (e. perpetual), sem telja til viðbótareiginfjárþáttar 1 (e. Additional Tier 1), með ISIN: XS2390396427 (“skuldabréfin”) um áform sín um að nýta innköllunarheimild útgefanda skv. skuldabréfunum að fullu á fyrsta innköllunardegi, þann 28. september 2026. Innköllunarheimildin verður nýtt í samræmi við 7. gr. c skilmála skuldabréfanna. Innköllunarverð skuldabréfanna verður 100,00%.