Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Á aðalfundi Íslandsbanka hf. (Íslandsbanki eða bankinn) sem haldinn var þann 19. mars 2026, var samþykkt að veita stjórn, fyrir hönd bankans, heimild til að kaupa á næstu 18 mánuðum frá samþykkt, hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin hlutum.
Vísað er til fyrri tilkynningar Íslandsbanka um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 15 milljarðar króna, sem tilkynnt var um 16. febrúar 2026 og hófst 17. febrúar sl. Tilkynnt var um lok þeirrar umferðar 16. mars 2026. Bankinn hyggst nú halda áfram framkvæmd framangreindrar endurkaupaáætlunar í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans eða til að uppfylla skuldbindingar bankans samkvæmt kaupréttarsamningum við starfsfólk hans, og vegna greiðslu kaupauka, í samræmi við starfskjarastefnu bankans.
Samþykkt og útgefið hlutafé bankans nemur 1.753.175.393 almennra hluta, þar sem hver hlutur er jafnvirði fimm króna. Við dagsetningu tilkynningar þessarar á bankinn 21.861.379 eigin hluti.
Að þessu sinni er áætlað að kaupa allt að 38.000.000 hluti sem jafngildir um 2,17% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 5.000.000.000. Endurkaupin hefjast 13. apríl 2026 næstkomandi og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. júní 2026.
Verð fyrir hvern keyptan hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Kaup hvers dags munu að hámarki nema 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf í bankanum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í marsmánuði 2026.
Endurkaupin verða framkvæmd af Arion banka hf. sem tekur ákvarðanir um kaup á hlutafé fyrir hönd bankans og tímasetningu
viðskipta óháð Íslandsbanka.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur nr. 1290/2025 um sama efni. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.
Viðskipti með hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í síðasta lagi í lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.