Fredag 2 Oktober | 00:07:13 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-10-29 18:10 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-07-29 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-20 - X-dag ordinarie utdelning ISB 7.28 ISK
2026-02-12 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-30 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-31 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-01 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.46 ISK
2025-02-13 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-23 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-25 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-02 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-22 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.26 ISK
2024-02-09 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.15 ISK
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-18 - X-dag ordinarie utdelning ISB 5.95 ISK
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1
LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Íslandsbanki hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

2026-10-01 18:27:00

Á aðalfundi Íslandsbanka hf. (hér eftir Íslandsbanki eða bankinn) sem haldinn var þann 19. mars 2026, var samþykkt að veita stjórn bankans heimild til að kaupa á næstu 18 mánuðum, hlutabréf í bankanum fyrir allt að 10% af heildarhlutafé bankans í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum.

Bankinn hefur á grundvelli framangreindrar heimildar aðalfundar bankans tekið ákvörðun um að hefja endurkaup á eigin hlutabréfum með framkvæmd endurkaupaáætlunar í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans eða til að uppfylla skuldbindingar bankans samkvæmt kaupréttarsamningum við starfsfólk hans, og vegna greiðslu kaupauka, í samræmi við starfskjarastefnu bankans. Með tilkynningu dags. 21. september 2026 tilkynnti bankinn að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefði veitt bankanum heimild fyrir allt að 10 milljarða króna endurkaupum eigin hluta að markaðsvirði. Fyrri heimildir bankans til endurkaupa eigin hluta eru þegar nýttar að fullu.

Samþykkt og útgefið hlutafé bankans nemur 1.753.175.393 almennra hluta, þar sem hver hlutur er jafnvirði fimm króna. Við dagsetningu tilkynningar þessarar á bankinn 98.616.256 eigin hluti. 

Að þessu sinni er áætlað að kaupa allt að 25.000.000 hluti sem jafngildir um 1,43% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 3.000.000.000 að markaðsvirði. Endurkaupin hefjast 2. október 2026 og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. desember 2026.

Verð fyrir hvern keyptan hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Kaup hvers dags munu að hámarki nema 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf í bankanum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í septembermánuði 2026.

Endurkaupin verða framkvæmd af Arion banka hf. sem tekur ákvarðanir um kaup á hlutafé fyrir hönd bankans og tímasetningu viðskipta óháð Íslandsbanka.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur nr. 1290/2025 um sama efni. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.

Viðskipti með hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í síðasta lagi í lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1055.