Torsdag 26 Februari | 22:37:04 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-02-26 18:03:00

Stjórn Íslandsbanka hf. boðaði til aðalfundar bankans með tilkynningu 26. febrúar 2026. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026, kl. 16:00, á hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Atkvæðagreiðsla á fundinum fer eingöngu fram með rafrænum hætti.

Í samræmi við samþykktir bankans hefur bankinn starfandi tilnefningarnefnd sem hefur það hlutverk að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu á aðalfundi bankans, eða eftir atvikum á hluthafafundi þar sem stjórnarkjör er á dagskrá.

Nánari upplýsingar um tilnefningarnefnd og starfsreglur nefndarinnar má finna á vef bankans.

Með tilkynningu í kerfi Kauphallarinnar og auglýsingu á vefsíðu bankans þann 26. janúar 2026 óskaði tilnefningarnefnd Íslandsbanka eftir framboðum til stjórnar, og sjónarmiðum hluthafa varðandi störf nefndarinnar í aðdraganda aðalfundar fyrir 4. febrúar 2026.

Tilnefningarnefnd Íslandsbanka leggur til að eftirtaldir einstaklingar verði kjörnir í stjórn Íslandsbanka hf. á aðalfundi bankans 19. mars nk.

  • Haukur Örn Birgisson, stjórnarmaður
  • Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður
  • Helga Hlín Hákonardóttir, stjórnarmaður
  • Margrét Pétursdóttir, stjórnarmaður
  • Stefán Pétursson, stjórnarmaður
  • Stefán Sigurðsson, stjórnarmaður
  • Valgerður Hrund Skúladóttir, stjórnarmaður
  • Herdís Gunnarsdóttir, varastjórn
  • Magnús E. Björnsson, varastjórn

Tilnefningarnefnd leggur jafnframt til að Heiðar Guðjónsson verði endurkjörinn sem formaður stjórnar.

Nánar er fjallað um framangreindar tillögur í skýrslu tilnefningarnefndar sem er meðfylgjandi.

Störf tilnefningarnefndar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir aðalfund, þ.e. klukkan 16:00 þann 14. mars 2026. Frambjóðendur sem vilja skila inn framboði til stjórnar eru beðnir um að fylla út sérstakt eyðublað sem finna má á vef bankans.

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is.