Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 29. janúar 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar að fjárhæð 5 milljarðar króna sem upphaflega var tilkynnt um þann 17. febrúar 2023.
Í viku 11 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) keypt 1.081.907 eigin hluti að kaupverði alls kr. 115.925.956 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími viðskipta | Keyptir hlutir | Gengi á hlut | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
12.3.2024 | 09:55 | 460.000 | 106,0 | 48.760.000 | 34.042.331 |
13.3.2024 | 10:49 | 460.000 | 108,0 | 49.680.000 | 34.502.331 |
14.3.2024 | 14:40 | 161.907 | 108,0 | 17.485.956 | 34.664.238 |
Samtals | 1.081.907 | 115.925.956 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 11 átti bankinn 33.582.331 eigin hlut, sem nemur 1,68 % af útgefnum hlutum.
Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 29. janúar 2024, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 9,5 milljónir hluti sem jafngildir 0,475% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000.
Í þessari umferð endurkaupa keypti bankinn 9.049.907 hluti, sem nemur 0,45% af útgefnum hlutum og fyrir samtals kr. 999.999.956 og er því framgreindu marki um hámarks fjárhæð endurkaupa í þessari umferð náð.
Frá upphafi 5 milljarða króna endurkaupaáætlunar í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 34.664.238 eigin hluti eða sem nemur 1,73% af útgefnum hlutum í bankanum. Heildarfjárhæð endurkaupa frá febrúar 2023 nemur 3.932.909.059 króna. Fyrir aðalfundi bankans, sem haldinn verður 21 .mars nk., liggur fyrir tillaga um endurnýjaða heimild til kaupa á eigin bréfum.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.