Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 10. apríl 2026 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 5 milljarðar króna sem upphaflega var tilkynnt um þann 16. febrúar 2026. Í viku 20 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 4.071.247 eigin hluti að kaupverði alls 595.949.444 kr. eins og nánar er greint í þessari tilkynningu.
Í viku 20 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 4.071.247 eigin hluti að kaupverði alls kr. 595.949.444 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dags | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 11.5.2026 | 11:37:30 | 200.000 | 147,00 | 29.400.000 | 52.631.499 |
| 11.5.2026 | 13:04:50 | 300.000 | 147,40 | 44.220.000 | 52.931.499 |
| 11.5.2026 | 13:22:45 | 200.000 | 147,20 | 29.440.000 | 53.131.499 |
| 11.5.2026 | 14:57:07 | 300.000 | 147,20 | 44.160.000 | 53.431.499 |
| 11.5.2026 | 15:00:26 | 200.000 | 147,20 | 29.440.000 | 53.631.499 |
| 11.5.2026 | 15:09:44 | 85.337 | 147,00 | 12.544.539 | 53.716.836 |
| 12.5.2026 | 10:49:44 | 300.000 | 146,70 | 44.010.000 | 54.016.836 |
| 12.5.2026 | 13:28:45 | 300.000 | 146,60 | 43.980.000 | 54.316.836 |
| 12.5.2026 | 13:47:43 | 300.000 | 146,50 | 43.950.000 | 54.616.836 |
| 12.5.2026 | 15:17:10 | 200.000 | 146,00 | 29.200.000 | 54.816.836 |
| 13.5.2026 | 10:27:17 | 300.000 | 146,00 | 43.800.000 | 55.116.836 |
| 13.5.2026 | 10:27:32 | 300.000 | 146,00 | 43.800.000 | 55.416.836 |
| 13.5.2026 | 14:58:50 | 200.000 | 145,80 | 29.160.000 | 55.616.836 |
| 13.5.2026 | 15:32:25 | 150.000 | 145,80 | 21.870.000 | 55.766.836 |
| 15.5.2025 | 12:16:33 | 200.000 | 145,20 | 29.040.000 | 55.966.836 |
| 15.5.2025 | 12:58:56 | 200.000 | 145,30 | 29.060.000 | 56.166.836 |
| 15.5.2025 | 14:32:03 | 335.910 | 145,50 | 48.874.905 | 56.502.746 |
| Samtals vika 20 | 4.071.247 | 595.949.444 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 20 átti bankinn 52.431.499 hluti, sem nemur 2,99% af útgefnum hlutum.
Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 10. apríl 2026, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 38 milljón hluti sem jafngildir 2,17% af útgefnu hlutafé bankans í umferðinni, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 5.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 13. apríl síðastliðinn og áttu að standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. júní 2026.
Í þessari umferð endurkaupa keypti bankinn 34.641.367 hluti, sem nemur 1,98% af útgefnum hlutum fyrir samtals kr. 4.999.999.940. Framangreindu hámarki heildarfjárhæðar endurkaupa er því náð í þessari umferð.
Bankinn á samtals 56.502.746 eigin hluti eða sem nemur 3,22% af útgefnum hlutum í bankanum. Áform um bestun á eiginfjársamsetningu bankans eru enn í forgangi, að teknu tilliti til markaðsaðstæðna.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.