Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 11. ágúst 2025 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum, sem upphaflega var tilkynnt um 7. júlí 2025. Í viku 37 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.531.709 eigin hluti að kaupverði alls kr. 193.442.898 eins og nánar er greint í þessari tilkynningu.
Í viku 37 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.531.709 eigin hluti að kaupverði alls kr. 193.442.898 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
8.9.25 | 09:53 | 250.000 | 126,50 | 31.625.000 | 37.845.791 |
8.9.25 | 13:47 | 200.000 | 125,75 | 25.150.000 | 38.045.791 |
9.9.25 | 10:06 | 250.000 | 125,50 | 31.375.000 | 38.295.791 |
9.9.25 | 14:04 | 250.000 | 125,50 | 31.375.000 | 38.545.791 |
10.9.25 | 10:30 | 250.000 | 126,50 | 31.625.000 | 38.795.791 |
11.9.25 | 10:18 | 331.709 | 127,50 | 42.292.898 | 39.127.500 |
Samtals vika 37 | 1.531.709 | 193.442.898 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 37 átti bankinn 37.595.791 hluti, sem nemur 2,00% af útgefnum hlutum.
Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 11. ágúst 2025, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 9 milljón hluti sem jafngildir 0,48% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 12. ágúst síðastliðinn og skyldu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. september 2025.
Í þessari umferð keypti bankinn 7.975.547 hluti, sem nemur 0,42% af útgefnum hlutum og nam heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 999.996.129 í umferðinni. Framangreindu hámarki heildarfjárhæðar endurkaupa er því náð í þessari umferð.
Bankinn á samtals 39.127.500 eigin hluti eða sem nemur 2,08% af útgefnum hlutum í bankanum.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur 1275/2024 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.