Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – lok umferðar
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 1. október 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum, sem upphaflega var tilkynnt um 21. september 2026. Í viku 48 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 532.018 eigin hluti að kaupverði alls 74.317.125 kr. eins og nánar er tilgreint í þessari tilkynningu.
Í viku 48 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 532.018 eigin hluti að kaupverði alls 74.317.125 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dags | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 23.11.2026 | 10:51:25 | 200.000 | 139,80 | 27.960.000 | 127.049.355 |
| 23.11.2026 | 13:30:29 | 250.000 | 139,40 | 34.850.000 | 127.299.355 |
| 23.11.2026 | 15:20:44 | 82.018 | 140,30 | 11.507.125 | 127.381.373 |
| Samtals vika 48 | 532.018 | 74.317.125 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 48, átti bankinn 126.849.355 hluti, sem samsvarar 7,24% af útgefnum hlutum.
Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 1. október 2026, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 25 milljón hluti sem jafngildir 1,43% af útgefnu hlutafé bankans í umferðinni, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 3.000.000.000. Þessi umferð endurkaupa hófst 2. október síðastliðinn og átti að standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð væri náð, en þó aldrei lengur en til 30. desember 2026.
Í þessari umferð endurkaupa keypti bankinn 21.565.117 hluti, sem nemur 1,23% af útgefnum hlutum, fyrir samtals 2.999.999.991 í umferðinni. Framangreindu hámarki heildarfjárhæðar endurkaupa er því náð í þessari umferð.
Bankinn á samtals 127.381.373 eigin hluti eða sem nemur 7,27% af útgefnum hlutum í bankanum. Áform um bestun á eiginfjársamsetningu bankans eru enn í forgangi, að teknu tilliti til markaðsaðstæðna.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 1290/2025 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum var fyrirliggjandi.