10:23:09 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Kalender

2023-10-26 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 Årsstämma 2022
2022-02-10 Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.
2023-03-16 20:33:00

Aðalfundur Íslandsbanka hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 16. mars 2023, í Norðurljósasal Hörpu, Reykjavík.

Jafnframt var gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem Finnur Árnason, stjórnarformaður, flutti skýrslu stjórnar og Birna Einarsdóttir, bankastjóri, fór yfir starfsemi og afkomu bankans á árinu 2022. Ársreikningur bankans var samþykktur sem og tillaga um greiðslu arðs að fjárhæð 6,15 krónur á hlut, sem jafngildir um 12,3 milljarða króna. Ákvað fundurinn að Ernst & Young ehf. gegni áfram hlutverki sínu sem endurskoðandi Íslandsbanka.

Sjálfkjörið var í stjórn bankans og stöður varamanna án sérstakrar atkvæðagreiðslu. Í stjórn Íslandsbanka sitja því nú eftirfarandi sjö stjórnarmenn:

  • Agnar Tómas Möller
  • Anna Þórðardóttir
  • Ari Daníelsson
  • Finnur Árnason
  • Frosti Ólafsson
  • Guðrún Þorgeirsdóttir
  • Valgerður Hrund Skúladóttir

Finnur Árnason var endurkjörinn formaður stjórnar.

Varamenn í stjórn Íslandsbanka eru:

  • Herdís Gunnarsdóttir
  • Páll Grétar Steingrímsson

Samþykkt var tillaga stjórnar um þóknun stjórnarmanna og laun varamanna sem og tillögur stjórnar um breytingar á starfskjarastefnu bankans og starfsreglum tilnefningarnefndar. Jafnframt voru samþykktar tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum bankans sem endurspegla heimild skilavalds Seðlabanka Íslands til skilaaðgerða í samræmi við lög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja nr. 70/2020.

Þá samþykkti aðalfundur tillögu stjórnar um heimild stjórnar til að kaupa fyrir hönd bankans allt að 10% af hlutafé hans. Heimild þessi skal nýtt í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Í meðfylgjandi skjali er nánar greint frá niðurstöðum fundarins.

Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl – Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri – Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir
 
Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
 
Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.