Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 5.220 m.kr.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 28 voru samtals 1.700 m.kr. á 0,10% álagi á 1 mánaða REIBOR. Heildartilboð voru 3.000 m.kr. á álagi á bilinu 0,07% til 0,15%. Bankinn gefur einnig út 32.820 m.kr. í flokknum til eigin nota. Heildarstærð flokks eftir útgáfuna verður 40.000 m.kr. og þar af eru 33.780 m.kr. til eigin nota eftir útboðið.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 32 voru samtals 2.220 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,39%. Heildartilboð voru 2.220 m.kr. á bilinu 3,33% til 3,39%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Heildarstærð flokks er 40.000 m.kr. og þar af eru 17.940 m.kr. til eigin nota eftir útboðið.
Bankinn gefur einnig út ISK 19.080 m.kr. í flokknum ISB CB 31 til eigin nota. Heildarstærð flokks verður 40.000 m.kr. og þar af eru 20.040 m.kr. til eigin nota.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 29. maí 2026.
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.