Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 10.880 m.kr.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 29 voru samtals 8.020 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,60%. Heildartilboð voru 8.020 m.kr., en útboðið fór fram á föstum kjörum.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 27 voru samtals 620 m.kr. á 1 mánaða REIBOR + 0,40%. Heildartilboð voru 920m.kr. á kröfubilinu REIBOR + 0,40% til REIBOR + 0,45%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CB 27 voru samtals 300 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 9,06%. Heildartilboð voru 1.940 m.kr. á bilinu 9,05% til 9,22%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans.
Í tengslum við útboðið bauðst eigendum flokksins ISB CB 23 að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Hreint verð á flokknum var fyrirfram ákveðið sem 99,7905. Bankinn kaupir til baka 7.700 m.kr. að nafnvirði í flokknum.