Onsdag 23 September | 23:13:06 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-10-29 18:10 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-07-29 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-20 - X-dag ordinarie utdelning ISB 7.28 ISK
2026-02-12 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-30 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-31 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-01 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.46 ISK
2025-02-13 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-23 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-25 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-02 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-22 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.26 ISK
2024-02-09 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.15 ISK
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-18 - X-dag ordinarie utdelning ISB 5.95 ISK
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1
LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Leiðrétting: Íslandsbanki hf.: Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitir heimild fyrir endurkaupum eigin hlutabréfa og lækkun hlutafjár

2026-09-23 18:53:00

Íslandsbanki hf. leiðréttir hér með tilkynningu um heimild fyrir endurkaupum eigin hlutabréfa og lækkun hlutafjár sem birt var 21. september 2026. Í tilkynningunni sagði að bankinn hefði átt í lok dags 18. september 2026 105.013.466 eigin hluti, eða sem svaraði til 5,99% af útgefnum hlutum. Réttur fjöldi hluta í dagslok 18. september 2026 nam 98.616.256 hlutum, sem svarar til 5,63%. Sjá leiðrétta tilkynningu hér að neðan.

Þann 18. september 2026 veitti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (fjármálaeftirlitið) Íslandsbanka hf. (bankinn) heimild fyrir allt að 10 milljarða króna endurkaupum eigin hluta að markaðsvirði. Heimildin er bundin því skilyrði að kjósi bankinn að greiða arð umfram arðgreiðslumarkmið bankans, lækki heildarfjárhæð heimildarinnar sem nemur fjárhæð slíkrar arðgreiðslu. Bankanum er heimilt að hefja endurkaupin við leyfisveitingu.

Við lok dags 18. september 2026 átti bankinn 98.616.256 eigin hluti, sem svarar til 5,63% af útgefnum hlutum. 

Bankinn mun nýta heimildina til endurkaupa í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum, til dæmis með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Bankinn mun tilkynna um tímasetningu og framkvæmd endurkaupa samkvæmt framangreindri heimild þegar ákvörðun um þau hefur verið tekin. 

Jafnframt veitti fjármálaeftirlitið bankanum heimild til lækkunar hlutafjár sem nemur fjárhæð þeirra eigin hluta sem keyptir hafa verið á grundvelli heimildar sem fjármálaeftirlitið veitti bankanum til kaupa á eigin hlutum dags. 4. febrúar 2026 og vegna þeirra hluta sem keyptir verða á grundvelli heimildar sem veitt er til kaupa á eigin hlutum dags. 18. september 2026.

Heimildir samkvæmt framangreindu gilda í 12 mánuði frá leyfisveitingu. 

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi heimild fjármálaeftirlitsins fyrir endurkaupum eigin hlutabréfa og lækkun hlutafjár bankans, sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.