00:55:57 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Kalender

2023-10-26 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 Årsstämma 2022
2022-02-10 Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.
2023-04-27 17:10:00

Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir fyrsta ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða þann 4. maí 2023. Rafrænn afkomufundur föstudaginn 5. maí kl. 8.30.

Íslandsbanki mun halda rafrænan afkomufund föstudaginn 5. maí kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans á fyrsta ársfjórðungi 2023 og helstu atriði í rekstri hans. Fundurinn fer fram á ensku.

Vefstreymið fer fram á þessari síðu. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á heimasíðu fjárfestatengsla að honum loknum. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Þar kemur upp listi yfir innhringingarnúmer og persónulegt PIN-númer. Ef það er ekki til staðarnúmer fyrir landið þitt, eða ef þú vilt fá símtal í stað þess að hringja inn, er hægt að nota „Hringja í mig“ valkostinn. Veldu þá landið þitt, sláðu inn símanúmerið þitt og smelltu á bláa „Call me“ hnappinn til að tengjast.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl, Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is. Sími: 698 0259.

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýn um að skapa virði til framtíðar með því að veita framúrskarandi þjónustu, vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.