Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir fjórða ársfjórðung og ársuppgjör 2022 eftir lokun markaða þann 9. febrúar 2023.
Rafrænn afkomufundur föstudaginn 10. febrúar kl.8.30
Íslandsbanki mun halda rafrænan afkomufund föstudaginn 10. febrúar kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Birna Einarsdóttir, bankastjóri og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans á fjórða ársfjórðungi og árinu 2022. Fundurinn fer fram á ensku.
Vefstreymið fer fram á þessari síðu. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á heimasíðu fjárfestatengsla að honum loknum. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Þar kemur upp listi yfir innhringingarnúmer og persónulegt PIN-númer. Ef það er ekki til staðarnúmer fyrir landið þitt, eða ef þú vilt fá símtal í stað þess að hringja inn, er hægt að nota „Hringja í mig“ valkostinn. Veldu þá landið þitt, sláðu inn símanúmerið þitt og smelltu á bláa „Call me“ hnappinn til að tengjast.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl, Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is. Sími: 698 0259.
Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir