Torsdag 30 Oktober | 09:54:21 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2026-01-30 21:20 Bokslutskommuniké 2025
2025-10-24 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-18 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-30 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-12 - Årsstämma
2025-01-31 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-22 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-17 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-25 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-07 - Årsstämma
2024-03-07 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2024-02-01 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-19 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-20 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-28 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-09 - Årsstämma
2023-02-02 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-20 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-21 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-04-28 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-03 - Årsstämma
2022-02-03 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-21 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-22 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-29 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-15 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2021-03-12 - Årsstämma
2021-02-08 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-27 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-07-27 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-11 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2020-05-01 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-07 - Bokslutskommuniké 2019
2019-05-10 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2019-02-07 - Bokslutskommuniké 2018
2017-03-06 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.11 ISK
2016-03-11 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.70 ISK
2015-03-11 - Årsstämma
2015-02-05 - Bokslutskommuniké 2014
2014-10-31 - Analytiker möte 2014
2014-10-30 - Kvartalsrapport 2014-Q3
2014-07-31 - Kvartalsrapport 2014-Q2
2014-04-30 - Kvartalsrapport 2014-Q1
2014-03-11 - Årsstämma
2014-02-06 - Bokslutskommuniké 2013
2013-10-31 - Analytiker möte 2013
2013-10-31 - Kvartalsrapport 2012-Q3
2013-10-30 - Kvartalsrapport 2013-Q3
2013-07-31 - Kvartalsrapport 2013-Q2
2013-05-02 - Kvartalsrapport 2013-Q1
2013-03-13 - Årsstämma
2013-02-08 - 15-7 2013
2013-02-07 - Bokslutskommuniké 2012
2012-11-01 - 15-7 2012
2011-03-18 - Årsstämma

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTjänster
IndustriFordon & Transport
Icelandair Group är ett flygbolag. Bolaget erbjuder resmål till och från Island, med störst verksamhet inom den europeiska marknaden. Utöver erbjuds långdistansflyg till olika resmål i Nordamerika. Inom koncernen erbjuds, förutom passagerartransport, även diverse globala luftfartstjänster som frakt- och godshantering, samt olika paketerbjudanden som kombinerar upplevelse, flyg och hotell.
2025-10-15 18:32:00

Drög að uppgjöri þriðja ársfjórðungs Icelandair Group liggja nú fyrir og skv. þeim er gert ráð fyrir að EBIT hagnaður félagsins verði um USD 74 milljónir samanborið við USD 83,5 milljónir á sama tíma á síðasta ári. Í afkomuspá  frá því í júlí sl. var gert ráð fyrir aukinni arðsemi á þriðja fjórðungi miðað við fyrra ár, en sú þróun hefur ekki gengið eftir.

Tekjur á fjórðungnum jukust á milli ára í samræmi við áætlanir þrátt fyrir þrýsting á fargjöld á Norður-Atlantshafsmarkaðnum. Hins vegar var kostnaður hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir sem skýrist af sterkara raungengi krónunnar, sem veldur hækkun á launakostnaði. Þá var eldsneytiskostnaður hærri en ráðgert var, þar með talinn kostnaður við uppgjör ETS kolefniseininga. Ófyrirséð skammtímaleiga á flugvél í ágúst, vegna viðgerðar á annarri flugvél, hafði aukinn kostnað í för með sér.

Sjóðsstaða félagsins var mjög sterk í lok september en handbært fé var um USD 410 milljónir og þá hafði félagið aðgang að óádregnum lánalínum upp á USD 92 milljónir.  Miðað við núverandi horfur er gert ráð fyrir að EBIT afkoma fyrir árið í heild verði neikvæð sem nemur USD 10-20 milljónum. Árshlutauppgjör félagsins er enn í vinnslu og getur tekið breytingum fram að birtingu.

Fyrir árið 2026 hefur félagið aðlagað framboð sitt að aðstæðum, einkum að veikri eftirspurn á Norður-Atlantshafsmarkaði og sterkri krónu. Þannig verður flugvélum í farþegaleiðakerfinu fækkað um tvær. Þrátt fyrir fækkun flugvéla er ráðgert að heildarframboð ársins, mælt í sætiskílómetrum, haldist nánast óbreytt á milli ára sem þýðir áframhaldandi bætt nýting innviða allt árið um kring. Áhersla á aukna skilvirkni í rekstri og strangt kostnaðaraðhald er áfram forgangsverkefni en þegar hefur verið ráðist í  fjölmargar aðgerðir til þess að bæta rekstur og afkomu.  

Icelandair birtir uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2025, miðvikudaginn 22. október 2025, en ekki 23. október eins og áður hafði verið tilkynnt. Streymt verður frá fjárfestakynningu í tengslum við birtingu uppgjörsins kl. 8:30 fimmtudaginn 23. október á: https://icelandairgroup.com  þar sem Bogi Nils Bogason forstjóri og Ívar S. Kristinsson framkvæmdastjóri fjármála munu fara yfir uppgjörið, fjalla um horfur í rekstrinum og svara spurningum. Kynningin ásamt streymi verða aðgengileg á vefsíðu fyrirtækisins eftir fundinn.