Måndag 17 November | 14:06:04 Europe / Stockholm
2025-10-24 17:02:00

Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) hefur í dag lokið útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokk HEIMAR301036 GB.

HEIMAR301036 GB er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.
Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,04%.

Uppgjör viðskiptanna er fyrirhugað þann 30. október nk. Óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í kjölfarið.

Skuldabréfin voru seld í lokuðu söluferli og útboðið er undanþegið gerð lýsingar, sbr. d-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Nálgast má grunnlýsingu, endanlega skilmála, grænu umgjörðina og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks á vefsíðu félagsins á slóðinni https://www.heimar.is/fjarfestar/fjarmoegnun/

Tilkynningar sem félagið birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Fossar fjárfestingabanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna ásamt töku þeirra til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veitir:
Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is