Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 38 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.302.300 eigin hluti að kaupverði 43.599.880 kr., í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 14.9.2026 | 09:44 | 256.300 | 33,60 | 8.611.680 |
| 15.9.2026 | 09:34 | 259.000 | 33,60 | 8.702.400 |
| 16.9.2026 | 09:33 | 260.000 | 33,40 | 8.684.000 |
| 17.9.2026 | 09:55 | 264.000 | 33,40 | 8.817.600 |
| 18.9.2026 | 09:43 | 263.000 | 33,40 | 8.784.200 |
| Samtals | 1.302.300 | 43.599.880 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 28. ágúst 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.
Heimar áttu 29.814.700 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 31.117.000 hluti, eða um 1,58% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta á árinu 2026 1.112.860.670 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is