Måndag 24 November | 11:49:01 Europe / Stockholm
2025-11-24 10:05:00

Í viku 47 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 3.550.000 eigin hluti að kaupverði 132.480.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:

 

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
17.11.202509:45700.00037,326.110.000
18.11.202509:46750.00037,227.900.000
19.11.202509:50700.00037,526.250.000
20.11.202509:38700.00037,326.110.000
21.11.202510:22700.00037,326.110.000
Samtals 3.550.000 132.480.000

 
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 11. nóvember 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Heimar áttu 43.300.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 46.850.000 hluti, eða um 2,32% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.701.896.175 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is