Í viku 46 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 2.267.925 eigin hluti að kaupverði 84.672.188 kr. í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 12.11.2025 | 10:02 | 767.925 | 37,5 | 28.797.188 |
| 13.11.2025 | 09:51 | 750.000 | 37,3 | 27.975.000 |
| 14.11.2025 | 11:22 | 750.000 | 37,2 | 27.900.000 |
| Samtals | 2.267.925 | 84.672.188 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 11. nóvember 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.
Heimar áttu 41.032.075 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 43.300.000 hluti, eða um 2,14% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.569.416.175 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is