Bifogade filer
Prenumeration
Tilkynning um afkomu A/F HEIM slhf.
Sérhæfði sjóðurinn A/F HEIM slhf., sem er í rekstri Arctica sjóða hf., hefur í dag samþykkt ársreikning sjóðsins. Vaxtatekjur námu 1.117 milljónum króna (2023: 1.537 milljónir króna) og vaxtagjöld 1.116 milljónum króna (2023: 1.537 milljónir króna). Hreinar rekstrartekjur félagsins námu 19,5 milljónum króna á árinu 2024 (2023: 18,8 milljónir króna). Hagnaður félagsins á árinu 2024 var 518 þúsund krónur (2023: 435 þúsund krónur).
Eignir félagsins námu 15,5 ma. kr. í árslok 2024 og skuldir félagsins námu á sama tíma 15,5 ma. kr. Eigið fé félagsins í árslok 2024 var 5,1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er að öðru leyti til ársreiknings félagsins um breytingar á eigin fé félagsins og ráðstöfun hagnaðar.
Sjóðurinn A/F HEIM slhf. var stofnaður árið 2021 og starfar samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Sjóðurinn fjárfesti í skráðum skuldabréfum sem voru útgefin af Heimavöllum hf. gegn greiðslu með skráðum skuldabréfum útgefnum af sjóðnum, sem eru með veði í fasteignatryggðum seljendalánum til Íveru ehf. Skráðir skuldabréfaflokkar A/F HEIM slhf. eru þrír talsins, HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248.
Meðfylgjandi er ársreikningur ársins 2024.