Onsdag 4 November | 05:49:00 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-03-09 16:35 Bokslutskommuniké 2026
2026-11-10 21:35 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-25 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-05 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-27 - X-dag ordinarie utdelning EIM 4.22 ISK
2026-03-03 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-04 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-26 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-13 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-28 - X-dag ordinarie utdelning EIM 13.33 ISK
2024-03-08 - X-dag ordinarie utdelning EIM 22.53 ISK
2024-03-07 - Årsstämma
2024-02-13 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-07 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-15 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-16 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-10 - X-dag ordinarie utdelning EIM 20.08 ISK
2023-03-09 - Årsstämma
2022-03-18 - X-dag ordinarie utdelning EIM 14.27 ISK
2022-02-14 - Bokslutskommuniké 2022
2021-03-26 - X-dag ordinarie utdelning EIM 2.47 ISK
2020-04-01 - X-dag ordinarie utdelning EIM 0.00 ISK
2020-03-26 - Årsstämma
2020-02-27 - Bokslutskommuniké 2019
2019-11-21 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-29 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-23 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-29 - X-dag ordinarie utdelning EIM 3.50 ISK
2019-03-28 - Årsstämma
2019-02-28 - Bokslutskommuniké 2018
2018-03-22 - Årsstämma
2017-03-24 - X-dag ordinarie utdelning EIM 6.80 ISK
2017-02-23 - Bokslutskommuniké 2016
2016-11-17 - Kvartalsrapport 2016-Q3
2016-08-25 - Kvartalsrapport 2016-Q2
2016-05-26 - Kvartalsrapport 2016-Q1
2016-03-18 - X-dag ordinarie utdelning EIM 6.50 ISK
2016-03-17 - Årsstämma
2016-02-25 - Bokslutskommuniké 2015
2015-11-19 - Kvartalsrapport 2015-Q3
2015-08-27 - Kvartalsrapport 2015-Q2
2015-05-21 - Kvartalsrapport 2015-Q1
2015-03-27 - X-dag ordinarie utdelning EIM 5.00 ISK
2015-03-26 - Årsstämma
2015-02-26 - Bokslutskommuniké 2014
2014-11-20 - Kvartalsrapport 2014-Q3
2014-08-28 - Kvartalsrapport 2014-Q2
2014-05-22 - Kvartalsrapport 2014-Q1
2014-03-28 - X-dag ordinarie utdelning EIM 2.60 ISK
2014-03-27 - Årsstämma
2014-02-27 - Bokslutskommuniké 2013
2013-11-21 - Kvartalsrapport 2013-Q3
2013-08-29 - Kvartalsrapport 2013-Q2
2013-05-23 - Kvartalsrapport 2013-Q1
2013-04-04 - X-dag ordinarie utdelning EIM 2.10 ISK
2013-04-03 - Årsstämma
2013-02-28 - Bokslutskommuniké 2012
2012-11-29 - Kvartalsrapport 2012-Q3
2012-08-29 - Kvartalsrapport 2012-Q2
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTjänster
IndustriShipping & Offshore
Eimskipafélag Íslands är verksamma inom transport och logistikbranschen. Bolaget erbjuder ett brett utbud av tjänster, inkluderat flyg- och sjötransport, container- och terminalhantering, lagerhållning samt övriga speditionstjänster. Utöver förfogar bolaget över en flotta bestående av fartyg i olika storlekar, huvudsakligen anpassat för transport av torrbulk och specialutrustning. Verksamhet innehas på global nivå, med störst marknad inom Europa, Nordamerika och Asien.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Eimskip: Afkoma annars ársfjórðungs 2026

2026-08-25 17:40:00

Góð niðurstaða á fjórðungnum þar sem undirliggjandi rekstur styrktist samhliða fjölbreyttum aðgerðum síðustu misseri sem miðuðu að því að bæta rekstur félagsins. Afkoman var í takt við sama tímabil í fyrra þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi.

Helstu atriði í afkomu annars ársfjórðungs

Tekjur á öðrum ársfjórðungi námu 225,4 milljónum evra og jukust um 23,1 milljón evra eða 11,4% frá sama tímabili í fyrra. Tekjuvöxturinn skýrist einkum af hærri alþjóðlegum flutningsverðum, hækkun olíuverðs og sterku magni, auk þess sem sérverkefni höfðu jákvæð áhrif á alþjóðlega flutningsmiðlun á fjórðungnum.

  • Tekjur í siglingakerfinu jukust um 9,9 milljónir evra eða 10,2% en flutningsmagn dróst saman um 2,4% á tímabilinu. Almennt var magn tengt Íslandi sterkt þrátt fyrir minni útflutning tengdum iðnaði.
  • Tekjur í alþjóðlegri flutningsmiðlun jukust um 13,6 milljónir evra eða 21,2%, drifið áfram af auknu magni, hærri alþjóðlegum flutningsverðum og nokkrum vel heppnuðum sérverkefnum á fjórðungnum.
  • Tekjur í annarri flutningstengdri þjónustu héldust stöðugar. Afkoman var studd af miklum umsvifum í landflutningum og hafnarstarfsemi þrátt fyrir að minnkun í magni hafi haft áhrif á vöruhús og kæligeymslur.

Rekstrarkostnaður nam 204,1 milljón evra og jókst um 23,0 milljónir evra eða 12,7% milli ára. Hækkunin skýrist fyrst og fremst af áhrifum geopólitískrar spennu í Mið-Austurlöndum sem leiddi til hærri olíukostnaðar, hærri alþjóðlegra flutningsverða, aukins kostnaðar í landflutningum ásamt hærri skipaleigukostnaði. Olíukostnaður félagsins hækkaði um 5,7 milljónir evra eða 52,7% milli tímabila þrátt fyrir 5,8% minni olíunotkun. Þá hækkaði ETS-kostnaður um 0,9 milljónir evra þar sem innleiðingarhlutfall ETS fór úr 70% í 100% í byrjun árs 2026.

EBITDA á öðrum ársfjórðungi nam 21,3 milljónum evra og var óverulega hærri en á sama tímabili í fyrra. Neikvæðra áhrifa að fjárhæð um 0,7 milljón evra gætti vegna verkfalls sjómanna á fjórðungnum.

Jákvæð áhrif fjölbreyttra aðgerða síðustu misseri eru áætluð um 13 milljónir evra á ársgrundvelli. Þar af raungerðust 3,2 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi með 2,7 milljóna evra jákvæðum áhrifum á EBITDA.

Hlutdeildarfélög skiluðu góðri afkomu sem nam 3,4 milljónum evra.

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri

„Rekstur annars ársfjórðungs gekk vel og þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi sáum við betri árangur í grunnrekstri félagsins en við höfum séð undanfarna ársfjórðunga. Tekjur jukust um 11,4% milli ára og EBITDA nam 21,3 milljónum evra sem var sambærilegt við sama tímabil í fyrra.

Ófriður í Mið-Austurlöndum hefur haft veruleg áhrif á flutningageirann líkt og marga aðra atvinnuvegi sem sést fyrst og fremst í gegnum miklar hækkanir á olíuverði, hækkun á verði annarra aðfanga og röskun á alþjóðlegum flutningsleiðum. Til að mynda hækkaði eldsneytiskostnaður félagsins um 53% milli ára. Þrátt fyrir þetta tókst að bæta afkomu félagsins sem rekja má til viðbragða við hækkandi kostnaði og þeirra aðgerða sem hófust á síðasta ári til að bæta rekstur félagsins sem fólst meðal annars í aukinni skilvirkni og fækkun stöðugilda.

Það er hins vegar áhyggjuefni ef þær forsendur sem kjarasamningar byggja á standast ekki enda er stöðugleiki á vinnumarkaði lykilforsenda fyrir samkeppnishæfni Íslands og áframhaldandi verðmætasköpun í íslensku atvinnulífi.

Sterkur útflutningur sjávarafurða, eldisfisks og vöxtur í útflutningi á vatni frá Íslandi studdi vel við gámasiglingakerfi félagsins sem vó að hluta til á móti minni flutningi tengdum stóriðju. Alþjóðleg flutningsmiðlun skilaði bættri afkomu meðal annars vegna aukins magns og vel heppnaðra flutninga tengdum sérverkefnum og þá skilaði önnur flutningatengd starfsemi einnig góðum árangri á fjórðungnum.

Við höldum áfram að fjárfesta í framtíð félagsins og þar sem af er ári höfum við fjárfest fyrir um 20 milljónir evra. Innleiðing nýs sölu- og þjónustukerfis fyrir gámasigingakerfið er langt komin og mun skapa aukin tækifæri til sjálfvirknivæðingar, gervigreindarlausna og bættrar þjónustu við viðskiptavini. Á næstu vikum verður tekin fyrsta skóflustungan af nýrri dreifingarmiðstöð á Selfossi og endurbætur standa yfir á dreifingarmiðstöð okkar í Reykjavík. Nýlega var tekin í notkun ný kæli- og frystigeymsla í Árósum og í Rotterdam jukum við þjónustuframboð okkar og bættum nýtingu í vöruhúsi með uppsetningu á kæli og frystiaðstöðu.“

Kynningarfundur 26. ágúst 2026

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri, og Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 26. ágúst nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2, 2. hæð. Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundurinn hefst. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir fundinn á netfangið investors@eimskip.com.

Skjöl og upptaka af fundinum verða aðgengileg á fjárfestasíðu félagsins, www.eimskip.is/investors.