Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Mat S&P byggir á þeirri skoðun að betri arðsemi Arion banka styðji við getu bankans til að takast á við afleiðingar mögulegar hóflegrar verðleiðréttingar á húsnæðismarkaði. S&P gerir einnig ráð fyrir því að bankinn standi af sér samkeppni frá lífeyrissjóðum á húsnæðislánamarkaði, ef til hennar kemur.
Þá eru stöðugar horfur í takt við væntingar S&P um að eiginfjárgrunnur Arion banka verði áfram mjög sterkur og að arðsemi haldist áfram góð á næstu tveimur árum og verði ívið hærri en hjá samkeppnisaðilum. Vaxtamunur og þóknanir hækki frá því lágmarki sem náð var í heimsfaraldrinum og útlánatöp lækki niður í um 0,30% útlána. Að auki gerir S&P ráð fyrir því að hægt verði að halda kostnaði í skefjum þrátt fyrir mikla verðbólgu þar sem bankinn muni áfram þjóna flestum viðskiptavina sinna með stafrænum hætti.