Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Viðbótar eiginfjárkrafa Arion banka undir stoð II (e. pillar II) 3,5% frá 1. júlí 2022
Niðurstaða Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á mati á áhættuþáttum í starfsemi Arion banka í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) sem framkvæmd er árlega er að Arion banki hf. skyldi frá og með 1. júlí 2022 viðhalda viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn sem næmi 3,5% af áhættugrunni, sem er hækkun sem nemur 0,3% frá fyrra ári. Heildareiginfjárkrafa að teknu tilliti til eiginfjárauka hækkar við framangreint í 18,8% úr 18,5%
Viðbótarkrafan kemur til vegna útlána-, mótaðila- og samþjöppunaráhættu og markaðs- og fastvaxtaáhættu, sem ekki var nægjanlega tekið tillit til við útreikning á grunnkröfu um eiginfjárgrunn (stoð I). Viðbótarkrafan skiptist þannig að almennt eigið fé þáttar 1 skal nema að lágmarki 2,0% af áhættugrunni og þáttur 1 í heild skal nema að lágmarki 2,6% af áhættugrunni.
Sjá nánar í tilkynningu á heimasíðu Fjármáleftirlits Seðlabanka Íslands https://www.sedlabanki.is/library/Skraarsafn/Gegnsaeistilk-FME/Gagnsaei_Arion_07072022.pdf