Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur veitt Arion banka A3 langtíma og Prime-2 skammtíma lánshæfismat á innlánum í erlendum og innlendum gjaldmiðlum og Baa1 lánshæfismat fyrir Arion banka sem útgefanda óveðtryggðra skuldabréfa. Langtíma lánshæfismat innlána og lánshæfismat bankans sem útgefanda eru með jákvæðum horfum.
Lánshæfismatið endurspeglar sterka eiginfjárstöðu Arion banka sem m.a. kemur fram í traustu vogunarhlutfalli (e. leverage ratio), ásamt góðri og batnandi arðsemi af kjarnastarfsemi, lágu hlutfalli vanskilalána og fullnægjandi lausafjárstöðu. Framangreindir þættir vega á móti áhættu vegna einstakra lántaka, landfræðilegri samþjöppun, markaðsáhættu og því að bankinn fjármagnar sig reglulega á skuldabréfamörkuðum.
Jákvæðar horfur endurspegla bætt áhættusnið bankans og væntingar Moody‘s um minni sveiflur í arðsemi hans á næstu 12-18 mánuðum.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
„Moody‘s veitir nú Arion banka lánshæfismat í fyrsta sinn og erum við mjög ánægð með niðurstöðuna. Lánshæfismatið byggir á góðri arðsemi sem mynduð er á breiðum tekjugrunni m.a. frá eignastýringu, fyrirtækjaráðgjöf og tryggingastarfsemi auk vaxtatekna af hefðbundinni bankastarfsemi. Auk þess bendir Moody‘s sérstaklega á sterka eiginfjárstöðu, lágt hlutfall vanskilalána og lausafjárstýringu sem styrkleika í lánshæfismati bankans. Einnig er sérlega ánægjulegt að lánshæfismatið er með jákvæðum horfum.“