Onsdag 21 Januari | 19:47:19 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2026-10-28 17:30 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-07-29 17:30 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-06 17:30 Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-11 N/A Årsstämma
2026-02-11 18:30 Bokslutskommuniké 2025
2025-10-29 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-30 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-07 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-13 - X-dag ordinarie utdelning ARION 11.50 ISK
2025-03-12 - Årsstämma
2025-02-12 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-30 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-25 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-30 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-14 - X-dag ordinarie utdelning ARION 9.00 ISK
2024-03-13 - Årsstämma
2024-02-07 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-26 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-16 - X-dag ordinarie utdelning ARION 8.50 ISK
2023-03-15 - Årsstämma
2023-02-08 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-26 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-27 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-04 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ARION 15.00 ISK
2022-03-16 - Årsstämma
2022-02-09 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-27 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ARION 1.74 ISK
2021-03-16 - Årsstämma
2021-02-10 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-28 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-07-29 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-15 - X-dag ordinarie utdelning ARION 0.00 ISK
2020-05-14 - Årsstämma
2020-05-06 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-12 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-09 - Årsstämma
2019-08-08 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-08 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning ARION 5.00 ISK
2019-02-13 - Bokslutskommuniké 2018
2018-10-31 - Kvartalsrapport 2018-Q3
2018-08-01 - Kvartalsrapport 2018-Q2

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Arion Bank bedriver bankverksamhet. Banken erbjuder finansiella tjänster inriktade mot lån, sparande och pension. Olika tjänster inkluderart traditionell kapitalförvaltning, lånefinansiering, samt fakturerings – och valutatjänster. En stor del av tjänsterna nås via internetbanken, där kunderna återfinns både bland privat- och företagskunder på den isländska marknaden. Huvudkontoret ligger i Reykjavik.

Intresserad av bolagets nyckeltal?

Analysera bolaget i Börsdata!

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-01-14 19:35:00

Vísað er til tilkynningar Arion banka, dags. 23. desember 2025, um fyrirhuguð endurkaup hlutabréfa. Í dag veitti Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands Arion banka heimild til endurkaupa á eigin bréfum að upphæð allt að 5,0 milljörðum króna, bæði á Íslandi og á heimildarskírteinum (SDR) útgefnum í Svíþjóð, ásamt lækkun hlutafjár. Stjórnendur bankans hafa í kjölfar þess ákveðið að hefja endurkaup sem nema allt að 5,0 milljörðum króna, eða allt að 25.839.793 hluti og SDR, sem samsvarar um 1,82% af útgefnu hlutafé bankans.

Íslandsbanki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar á Íslandi og í Svíþjóð. Mun Íslandsbanki hf. taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð Arion banka hf. Áætlunin tekur gildi á báðum mörkuðum þann 15. janúar 2026 og gildir til 31. desember 2026, með fyrirvara um samþykki aðalfundar Arion banka hf. fyrir áframhaldandi endurkaupum. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á þessu tímabili. Markmið endurkaupa er að lækka hlutafé bankans í samræmi við arðgreiðslustefnu.

Heimilt verður að kaupa allt að 516.796 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 25.322.997 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,78% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,82% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Við upphaf endurkaupaáætlunarinnar á bankinn 36.739.576 eigin hluti sem jafngildir um 2,59% af útgefnum hlutum bankans.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður þannig háttað að kaup hvers dags í kauphöll Nasdaq Ísland og Nasdaq Stokkhólmi verða að hámarki 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf eða SDR bankans á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup gerast.

Í kauphöll Nasdaq á Íslandi og Nasdaq Stokkhólmi skal verð fyrir hvern hlut að hámarki samsvara hæsta verði í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Ísland, hvort sem hærra er, allt í samræmi við ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem lagagildi hefur á Íslandi og kafla H í viðbæti D við Reglubók fyrir útgefendur hlutafjár á aðalmörkuðum Nasdaq Nordic sem tók gildi þann 1. janúar 2026.

Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.