Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Breyttir og endurgerðir lokaskilmálar og viðbótar samningur um skilmála
Arion banki hf. hefur þann 15. mars 2024 undirgengist viðbótar umboðssamning (e. supplemental agency agreement) í því skyni að breyta og endurgera lokaskilmála seríu 2021-1 hluti 1 sértryggðra skuldabréfa, dags. 1. október 2021 (ISIN: XS2391348740) („lokaskilmálar seríu 2021-1 hluti 1“), lokaskilmála seríu 2021-1 hluti 2 sértryggðra skuldabréfa, dags. 6. apríl 2022 (ISIN: XS2391348740) („lokaskilmálar seríu 2021-1 hluti 2“), og saman með lokaskilmálum seríu 2021-1 hluti 1, „lokaskilmálar seríu 2021-1“ og sería 2021-2 sértryggð skuldabréf, dags. 5. júlí 2022 (ISIN: XS2500208991) („lokaskilmálar seríu 2021-2“ og saman með lokaskilmálum seríu 2021-1, „lokaskilmálar“.
Arion banki hf. hefur jafnframt undirgengist viðbótar samning um skilmála vegna seríu 2021-1 (ISIN: XS2391348740) og seríu 2021-2 (ISIN: XS2500208991) sértryggðu skuldabréfanna.
Viðbótar umboðssamningurinn, viðbótar samningur um skilmála og breyttir og endurgerðir lokaskilamálar eru í viðhengi með þessari tilkynningu.
Fyrirvari – ætlaðir viðtakendur
Viðbótar umboðssamningurinn, breyttir og endurgerðir lokaskilmálar og viðbótar samningur um skilmála eru ekki boð um sölu verðbréfa í Bandaríkjunum. Þetta er ekki ætlað til dreifingar í Bandaríkjunum. Þeim verðbréfum sem er lýst hér, hafa ekki, og verða ekki, skráð undir bandarísku verðbréfalöggjöfinni (e. U.S. Securities Act of 1933) frá 1933, með síðari breytingum eða undir einhverri tengdri verðbréfalöggjöf í einhverju fylki Bandaríkjanna og eru útsett fyrir kröfum bandarískrar skattalöggjafar. Að nokkrum undantekningum undanskildum, þá má ekki bjóða verðbréfin eða selja þau innan Bandaríkjanna, eða til, fyrir eða til hagsbóta fyrir, bandarískra aðila (e. U.S. Persons) eða aðila innan Bandaríkjanna, eins og slíkir aðilar eru skilgreindir í reglugerð S (e. Regulation S) undir bandarísku verðbréfalöggjöfinni. Það verður ekkert opinbert útboð á verðbréfunum í Bandaríkjunum. Réttur viðtakanda til að fá þessi réttindi er háður ofangreindum skilyrðum.