Arion banki: Samið um sölu Blikastaðalands ehf. til sérhæfðs sjóðs í stýringu Íslenskra verðbréfa hf.
Landey ehf., dótturfélag Arion banka hf., hefur samið við Íslensk verðbréf hf., fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs, um kaup sjóðsins á öllu hlutafé Landeyjar í Blikastaðalandi ehf., sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ. Kaupverðið er 15,6 milljarðar króna, en kaupin eru með fyrirvara um fjármögnun hins sérhæfða sjóðs.
Landey ehf., dótturfélag Arion banka hf., hefur undirritað samning við Íslensk verðbréf hf. (ÍV) um kaup á Blikastaðalandi ehf. Samningurinn er gerður fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs sem verður í stýringu ÍV.
Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um fjármögnun hins sérhæfða sjóðs. Ráðgert er að samningurinn komi til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi 2027.
Umsamið kaupverð í viðskiptunum er 15,6 milljarðar króna. Þar af koma 9 milljarðar króna til greiðslu þegar samningurinn kemur til framkvæmda. Þá koma 3,5 milljarðar króna til greiðslu á árinu 2033 og 3,1 milljarður króna á árinu 2038. Hinar frestuðu greiðslur eru verðtryggðar og bera 3% ársvexti.
Íslensk verðbréf eiga í samstarfi við fasteignaþróunarfélagið Klasa ehf. um kaupin, sem fyrirhugaðan þróunaraðila verkefnisins, ásamt því að ráðgert er að Klasi verði kjölfestufjárfestir í hinum sérhæfða sjóði.
Kaupsamningurinn byggir á tilboði ÍV sem lagt var fram í öðrum fasa söluferlis Blikastaðalands ehf.
Vegna fyrirvara um fjármögnun hefur á þessum tímapunkti ekki verið tekin ákvörðun um að uppfæra bókfært verðmat Blikastaðalands ehf. Í árshlutareikningi Arion banka í lok september 2026 er félagið metið á um 7,6 milljarða króna.