Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 14. janúar 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 3. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Arion |
| 15.01.2026 | 14:00:21 | 200.000 | 205,00 | 41.000.000 | 33.416.144 |
| 15.01.2026 | 14:25:48 | 250.000 | 205,00 | 51.250.000 | 33.666.144 |
| 16.01.2026 | 09:55:19 | 200.000 | 205,00 | 41.000.000 | 33.866.144 |
| 16.01.2025 | 10:46:39 | 150.000 | 205,00 | 30.750.000 | 34.016.144 |
| 16.01.2025 | 11:00:55 | 250.000 | 204,00 | 51.000.000 | 34.266.144 |
| 1.050.000 | 215.000.000 | 34.266.144 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
| 15.01.2026 | 10:00:37 | 5.000 | 15,00 | 75.000 | 3.528.432 |
| 15.01.2026 | 10:00:37 | 5.000 | 15,00 | 75.000 | 3.533.432 |
| 16.01.2026 | 10:13:13 | 4.935 | 15,15 | 74.765 | 3.538.367 |
| 16.01.2026 | 10:21:54 | 65 | 15,15 | 985 | 3.538.432 |
| 15.000 | 225.750 | 3.538.432 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 3 samtals 36.739.576 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 3 samtals 37.804.576 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,66% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 1.050.000 hluti fyrir 215.000.000 kr. og 15.000 heimildarskírteini fyrir 225.750 sænskar krónur.
Heimilt er að kaupa allt að 516.796 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 25.322.997 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,78% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,82% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026, með fyrirvara um samþykki aðalfundar Arion banka hf. fyrir áframhaldandi endurkaupum. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.