Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Í samræmi við starfskjarastefnu Arion banka hf. er í gildi kaupréttaráætlun á grundvelli 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 sem samþykkt var á aðalfundi bankans árið 2020 með síðari breytingum.
Kaupréttaráætlunin gildir til fimm ára frá árinu 2021 til ársins 2026 og nær til allra fastráðinna starfsmanna bankans og dótturfélaganna Varðar trygginga hf. og Stefnis hf. og er markmið áætlunarinnar að samþætta hagsmuni starfsfólks við langtímahagsmuni samstæðunnar. Tilkynnt var um framkvæmd kaupréttaráætlunarinnar og breytingar á henni þann 9. febrúar 2021, 18. febrúar 2022, 9. maí 2022, 20. febrúar 2023 og 15. maí 2023.
Í kjölfar nýtingar kauprétta nú í febrúar og gerð nýrra kaupréttarsamninga, eru í gildi kaupréttarsamningar við starfsfólk bankans og dótturfélaga sem ná til samtals 8.637.920 hluta á ári til ársins 2026. Kaupgengi hlutanna skiptist þannig að gildandi eru árlegir kaupréttir að 2.795.925 hlutum á genginu 95,5, að 4.326.495 hlutum á genginu 153,75, 706.486 hlutum á genginu 140,56 og 809.004 hlutum á genginu 155,75. Heildarfjöldi starfsfólks bankans og dótturfélaga með gilda kaupréttarsamninga eru 773.