Arion banki hf.: S&P gerir ráð fyrir að gefa útgáfuramma Arion banka fyrir sértryggð skuldabréf lánshæfiseinkunnina A-
2021-09-20 17:53:00
S&P Global Ratings gerir ráð fyrir að útgáfurammi Arion banka fyrir sértryggð skuldabréf bæði í evrum og íslenskum krónum fái lánshæfiseinkunna A- með stöðugum horfum.
Laga- og regluverk sértryggðra skuldabréfa á Íslandi aðgreinir hinar sértryggðu eignir frá gjaldþrotaáhættu útgefandans. Sú aðgreining gerir það verkum að S&P getur gefið útgáfuramma Arion banka fyrir sértryggð skuldabréf betri langtíma lánshæfiseinkunn en bankanum sjálfum, en lánshæfiseinkunn bankans er í dag BBB. S&P rýndi einnig íbúðalánastarfsemi Arion banka og gaf henni jákvæða umsögn.