Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 11. apríl 2025 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 20. viku 2025 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Arion |
12.5.2025 | 10:45:39 | 500.000 | 159,25 | 79.625.000 | 27.105.083 |
500.000 | 79.625.000 | 27.105.083 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
12.5.2025 | 11:04:19 | 5,000 | 11.85 | 59,250 | 3,484,553 |
5,000 | 59,250 | 3,484,553 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 20 samtals 30.084.636 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 20 samtals 30.589.636 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,15% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 11.733.176 hluti fyrir 1.828.231.241 kr. og 40.544 heimildarskírteini fyrir 477.481 sænskar krónur.
Heimilt er að kaupa allt að 397.350 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,03% af útgefnum hlutum og allt að 19.470.150 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,37% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,4% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 60.000.000 kr. í Svíþjóð og 2.940.000.000 kr. á Íslandi (samtals 3,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31.desember 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1275/2024 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina eru birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.