Söndag 6 Juli | 08:22:34 Europe / Stockholm
2025-04-22 18:35:00

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 11. apríl 2025 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 16. viku 2025 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Hlutir í eigu Arion
14.04.202514:18:51500.000149,2574.625.00015.871.907
15.04.202511:01:40500.000153,2576.625.00016.371.907
15.04.202512:33:28100.00015315.300.00016.471.907
15.04.202512:49:3215.0001532.295.00016.486.907
15.04.202513:24:257.5501531.155.15016.494.457
15.04.202514:31:44300.00015446.200.00016.794.457
16.04.202509:46:00500.000154,577.250.00017.294.457
16.04.202511:01:50300.000154,546.350.00017.594.457


2.222.550
339.800.15017.594.457

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeypt SDRViðskiptaverðKaupverð (SEK)SDR í eigu Arion
14.04.202510:45:232.39411,327.0523.446.403


2.394
27.0523.446.403

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 16 samtals 18.815.916 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 16 samtals 21.040.860 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 1,48% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 2.222.550 hluti og 2.394 heimildarskírteini.

Heimilt er að kaupa allt að 397.350 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,03% af útgefnum hlutum og allt að 19.470.150 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,37% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,4% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 60.000.000 kr. í Svíþjóð og 2.940.000.000 kr. á Íslandi (samtals 3,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1275/2024 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina eru birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.