Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 14. janúar 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 13. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Arion |
| 23.3.2026 | 12:23:11 | 150.000 | 179,00 | 26.850.000 | 48.816.893 |
| 23.3.2026 | 13:37:54 | 173.000 | 179,50 | 31.053.500 | 48.989.893 |
| 24.3.2026 | 11:06:24 | 200.000 | 178,25 | 35.650.000 | 49.189.893 |
| 24.3.2026 | 14:40:07 | 200.000 | 177,00 | 35.400.000 | 49.389.893 |
| 24.3.2026 | 15:07:55 | 130.000 | 177,00 | 23.010.000 | 49.519.893 |
| 25.3.2026 | 10:22:37 | 200.000 | 179,00 | 35.800.000 | 49.719.893 |
| 25.3.2026 | 12:52:34 | 200.000 | 178,75 | 35.750.000 | 49.919.893 |
| 26.3.2026 | 10:05:37 | 200.000 | 178,25 | 35.650.000 | 50.119.893 |
| 26.3.2026 | 14:14:05 | 200.000 | 177,75 | 35.550.000 | 50.319.893 |
| 27.3.2026 | 10:01:11 | 150.000 | 175,25 | 26.287.500 | 50.469.893 |
| 27.3.2026 | 10:11:09 | 100.000 | 175,25 | 17.525.000 | 50.569.893 |
| 1.903.000 | 338.526.000 | 50.569.893 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
| 23.3.2026 | 16:12:55 | 2.733 | 13,20 | 36.076 | 3.677.620 |
| 24.3.2026 | 15:16:00 | 62 | 13,30 | 825 | 3.677.682 |
| 25.3.2026 | 13:45:40 | 1.658 | 13,30 | 22.051 | 3.679.340 |
| 25.3.2026 | 14:12:36 | 355 | 13,30 | 4.722 | 3.679.695 |
| 25.3.2026 | 15:29:13 | 65 | 13,30 | 865 | 3.679.760 |
| 27.3.2026 | 09:57:01 | 1.978 | 13,25 | 26.209 | 3.681.738 |
| 27.3.2026 | 09:57:01 | 3.022 | 13,25 | 40.042 | 3.684.760 |
| 9.873 | 130.788 | 3.684.760 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 13 samtals 52.341.780 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 13 samtals 54.254.653 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 3,82% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 24.668.039 hluti fyrir 4.829.637.065 kr. og 161.328 heimildarskírteini fyrir 2.344.277 sænskar krónur.
Heimilt er að kaupa allt að 516.796 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 25.322.997 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,78% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,82% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026, með fyrirvara um samþykki aðalfundar Arion banka hf. fyrir áframhaldandi endurkaupum. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.