2025-05-08 19:17:00
Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 28 fyrir samtals 2.120 m.kr.
Í flokkinn ARION CBI 28 bárust 15 tilboð að fjárhæð 3.360 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,92 – 4,00%. Tilboð að nafnvirði 2.120 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,97%. Heildarstærð flokksins verður 27.420 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 15. maí 2025.
Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.
Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.