Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Í samræmi við starfskjarastefnu Arion banka er í gildi kaupaukakerfi fyrir starfsfólk og stjórnendur bankans. Á grundvelli kaupaukakerfis Arion banka, vegna ársins 2025, hefur bankinn nú gengið frá samningum um kauprétti að samtals 3.939.814 hlutum í félaginu, við hluta af starfsfólki bankans.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
- Grunnverð er 199,5 á hlut sem er gengi hlutabréfa í bankanum á þeim degi er ársreikningur fyrir árið 2025 var samþykktur og er það ávaxtað yfir ávinnslutíma á 5,5% ársvöxtum og skal verðið m.a. leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að vera ákveðnar á ávinnslutíma.
- Kaupréttarsamningar vegna 1.514.516 hluta eru með þeim hætti að 1/2 af kauprétti ávinnst á þremur árum frá útgáfu og eftirstöðvar ávinnast á fjórum árum (fimm ár fyrir bankastjóra og starfsfólk sem heyra beint undir bankastjóra) frá útgáfu. Nýtingartímabil er í hvort skipti 20 virkir dagar eftir birtingu ársreiknings. Ef hluti kaupréttar er ekki nýttur á viðkomandi tímabili fellur hann niður.
- Kaupréttarsamningar vegna 2.425.298 hluta eru með þeim hætti að allur kaupréttur ávinnst á fjórum árum (fimm ár fyrir bankastjóra og starfsfólk sem heyra beint undir bankastjóra) frá útgáfu. Nýtingartímabil er 20 virkir dagar eftir birtingu ársreiknings. Ef kaupréttur er ekki nýttur á nýtingartímabili fellur hann niður.
- Kaupréttir falla almennt niður ef ráðningarsambandi er slitið.
- Við tilteknar aðstæður er félaginu heimilt að afturkalla kauprétti í heild eða að hluta í samræmi við reglur félagsins um kaupaukakerfi.
- Virði kauprétta var reiknað skv. reiknilíkani Black-Scholes af óháðum sérfræðingi.
Heildarfjöldi útgefinna kauprétta samkvæmt framangreindri útgáfu nemur um 0.28% hlutafjár í félaginu.
Upplýsingar um forsendur við verðlagningu kauprétta skv. kaupaukakerfi fyrir árið 2025 og helstu skilmála þeirra er að finna hér.
Upplýsingar um viðskipti stjórnenda með framangreinda kauprétti og afhendingu hlutabréfa eru í viðhengi.