Söndag 28 December | 12:16:11 Europe / Stockholm
2025-12-23 18:45:00

Arion banki hf. („Arion“) og Kvika banki hf. („Kvika“) undirrituðu í dag viðauka við áformabréf félaganna um samrunaviðræður sem undirritað var í júlí 2025.

Arion sendi í dag Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands erindi þar sem óskað er eftir heimild til endurkaupa á eigin bréfum fyrir fjárhæð allt að 5,0 milljörðum króna, bæði á Íslandi og á heimildarskírteinum (SDR) útgefnum í Svíþjóð, og lækkun hlutafjárFramkvæmd endurkaupanna er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins.

Arion og Kvika hafa jafnframt í dag undirritað viðauka við áformabréf félaganna um samrunaviðræður sem gerður var í júlí 2025 sem felur í sér að fyrirhuguð endurkaup Arion og endurkaup Kviku á eigin bréfum fyrir fjárhæð allt að 1.756.756.000 krónur hafi ekki áhrif á þau skiptahlutföll samrunans sem aðilar hafa komið sér saman um.

Fyrirhuguð endurkaup eru einkum vegna innleiðingar CRR III reglugerðar Evrópusambandsins, sem hefur í för með sér markverðar breytingar á eiginfjárkröfum fjármálafyrirtækja.

Forviðræður við Samkeppniseftirlitið, sem hófust í ágúst sl., standa enn yfir og verður þeim haldið áfram á nýju ári. Nánar verður upplýst um framvindu viðræðna þegar ástæða er til og í samræmi við lögbundna upplýsingaskyldu.