2025-04-30 15:57:00
Arion banki birtir uppgjör fjórða ársfjórðungs og ársuppgjör 2025 miðvikudaginn 7. maí, eftir lokun markaða.
Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 8. maí kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 8. maí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.