11:53:40 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2023-05-10 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-17 Årsstämma 2023
2023-02-15 Bokslutskommuniké 2022
2022-11-02 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-30 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-11 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-18 Årsstämma 2022
2022-02-16 Bokslutskommuniké 2021
2021-11-03 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-09-01 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-12 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-02-24 Bokslutskommuniké 2020
2020-11-04 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-26 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-13 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-20 Årsstämma 2020
2020-02-26 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-21 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-09 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-25 Ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2019-03-22 Årsstämma 2019
2019-02-27 Bokslutskommuniké 2018

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Sýn är ett telekombolag. Idag erbjuder bolaget ett brett utbud av mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, övriga IP-lösningar, samt tillhörande support och tjänster. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden. Bolaget kom till vid en sammanslagning av Vodafone Island och bolagen som gick under 365 koncernen.
2023-11-09 10:37:40

Aðalfundur Sýnar hf. haldinn þann 17. mars 2023 samþykkti að veita stjórn félagsins heimild til þess að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af eigin bréfum. Heimildina skal einungis nýta í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu, setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum.

Samkvæmt viðauka við 30. gr. samþykkta félagsins gildir heimildin í 18 mánuði frá samþykkt hennar.  

Stjórn Sýnar hf. hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Félagið á í dag enga eigin hluti og munu endurkaupin nema að hámarki 8.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,19% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 300 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 16. febrúar 2024 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu nema að hámarki 65.000 hlutum, eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í október 2023. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Markaðsviðskipti Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is