09:27:09 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2023-05-10 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-17 Årsstämma 2023
2023-02-15 Bokslutskommuniké 2022
2022-11-02 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-30 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-11 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-18 Årsstämma 2022
2022-02-16 Bokslutskommuniké 2021
2021-11-03 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-09-01 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-12 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-02-24 Bokslutskommuniké 2020
2020-11-04 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-26 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-13 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-20 Årsstämma 2020
2020-02-26 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-21 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-09 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-25 Ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2019-03-22 Årsstämma 2019
2019-02-27 Bokslutskommuniké 2018

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Sýn är ett telekombolag. Idag erbjuder bolaget ett brett utbud av mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, övriga IP-lösningar, samt tillhörande support och tjänster. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden. Bolaget kom till vid en sammanslagning av Vodafone Island och bolagen som gick under 365 koncernen.
2024-02-27 17:50:12

Ársreikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir árið  2023 var samþykktur á stjórnarfundi þann 27. febrúar 2024.

Rekstrarhagnaður (EBIT) samstæðunnar nam 3.544 m.kr. árið 2023.

Kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar voru samþykkt í lok september og fór afhending fram þann 4. október sl. Umsamið kaupverð var 3.000 m.kr. og söluhagnaður bókfærður í 4F 2023 að fjárhæð 2.436 m.kr.

Þann 13. febrúar var tilkynnt um áhrif tiltekinna einskiptisliða og afskrifta tengdum rekstrarhagræðingu á afkomu ársins 2023, og eru áhrif þeirra liða 837 m.kr. á afkomu 4F og ársins 2023.

Rekstrarhagnaður ársins 2023 að teknu tilliti til fyrrgreindra einskiptisliða og sölu stofnetsins nemur því 1.945 m.kr. Rekstrarhagnaður fjórða ársfjórðungs nemur 351 m.kr. að teknu tilliti til fyrrgreindra liða.

Hagnaður eftir skatta árið 2023 nam 2.109 m.kr. samanborið við 888 m.kr. fyrir árið 2022.

Rekstur Já var tekinn inn í samstæðuna á 4F og ný rekstrareining, Vefmiðlar og útvarp, stofnuð. Þann 14. desember var tilkynnt að framtíðareignarhald rekstrareiningarinnar Vefmiðla og útvarps hefði verið tekið til skoðunar. Sú skoðun stendur nú yfir og er tíðinda að vænta á vormánuðum.

Áframhaldandi góður gangur í auglýsingasölu, hýsingar- og rekstrarlausnum og reikitekjum. Auglýsingatekjur jukust um 13% á árinu. Áherslur ársins 2024 verða að ná kostnaði niður ásamt því að viðhalda kjarnatekjum félagsins.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri:

„Það er ánægjulegt að taka við Sýn, þar sem starfar öflugt starfsfólk og samfélagslega mikilvæg starfsemi á sér stað.  Margir stórir áfangar hafa náðst á síðastliðnu ári en ég kom sjálf til starfa um miðjan janúar á þessu ári. Afhending á stofnneti fór fram á fjórða ársfjórðungi og þá kom starfsfólk Já í hús sem er afar ánægjulegt. Vel hefur gengið að innleiða starfsemi Já inn í rekstrareininguna, Vefmiðla og útvarp.

Rekstrarumhverfið er krefjandi og má hér nefna m.a. baráttuna við háa verðbólgu sem hefur óneitanlega áhrif á rekstur Sýnar. Við munum á rekstrarárinu 2024 leggja ríka áherslu á að létta á skuldum, aðhald í kostnaði ásamt því að viðhalda kjarnatekjum félagsins. 

Í kjölfar eignasölu er eðlilegt að fara yfir innviðaeignir félagsins og munu afskriftir á þeim létta á rekstrinum fram á við. Sú breyting á afskriftarreglum erlendra sýningarrétta sem tilkynnt var um þann 13. febrúar sl. hefur í för með sér að afskriftum verður hraðað frá því sem verið hefur. Við leggjum áherslu á áframhaldandi öflugan en jafnframt skýrari og skilvirkari rekstur og er þessi breyting á afskriftum liður í því.

Vodafone efldi vöruframboð og þjónustu við viðskiptavini til muna á árinu 2023 m.a. með nýjum vörupökkum og umbreytingu á þjónustu á einstaklingsmarkaði sem hefur skilað sér í aukinni sölu og ánægju viðskiptavina.

Hjá Miðlum einkenndist árið af góðum vexti í auglýsingatekjum og leitum við sífellt að fleiri tækifærum á þeim vettvangi. Dótturfélagið Endor átti einnig mjög gott ár og lítur starfsemi Endor mjög vel út fyrir núverandi rekstrarár.

Skuldbinding okkar við ábyrgð er í forgrunni í nýrri stefnu félagsins. Félagið hefur unnið að stefnumörkun á sviði sjálfbærni til að varða veginn framundan. Á síðastliðnum tveimur árum hefur átt sér stað innleiðing á sjálfbærnistaðli sem mun styrkja við innviði félagsins í þá átt.

Í ljósi þess að við erum í stefnumótun með Stöð 2 og framtíðareignarhald á Vefmiðlum og útvarpi er til skoðunar sem og að áhersla verður á kostnaðaraðhald og hagræðingu til skamms tíma verða ekki gefnar út horfur á árinu.“