11:34:54 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Kalender

2021-03-05 Ordinarie utdelning ORIGO 0.00 ISK
2021-03-04 Årsstämma 2021
2021-01-28 Bokslutskommuniké 2020
2020-10-21 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-19 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-04-29 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-06 Ordinarie utdelning ORIGO 0.00 ISK
2020-03-05 Årsstämma 2020
2020-01-29 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-31 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-22 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-07 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-08 Ordinarie utdelning ORIGO 0.00 ISK
2019-03-07 Årsstämma 2019
2019-01-30 Bokslutskommuniké 2018
2018-03-02 Årsstämma 2018
2018-01-31 Bokslutskommuniké 2017

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorTjänster
IndustriIT-konsult & onlinetjänster
Origo är ett IT-bolag. Idag levererar bolaget digitala lösningar, vilket inkluderar applikationsutveckling, systemintegration, samt tillhörande teknisk support. Övriga tjänster inkluderar molnbaserade lönesystem samt personalhanteringssystem. Tjänsterna används huvudsakligen av medelstora- och stora företagskunder inom finans, hälsa- och sjukvård, samt industri. Bolaget innehar verksamhet på global nivå, med störst verksamhet inom den nordiska marknaden.
2021-01-28 19:21:00

15% tekjuvöxtur á árinu 2020

Helstu fjárhagsupplýsingar:Helstu fréttir úr starfsemi:
Sala á vöru og þjónustu nam 4.906 mkr á fjórða ársfjórðungi 2020 (13,1% tekjuvöxtur frá F4 2019) og 17.062 mkr á árinu (14,9% tekjuvöxtur frá 12M 2019) [F4 2019: 4.336 mkr, 12M 2019: 14.845 mkr]
Frábær vinna starfsfólks í að vinna við breyttar aðstæður
Framlegð* nam 1.231 mkr (25,1%) á fjórða ársfjórðungi og 4.288 mkr (25,1%) á árinu [F4 2019: 1.325 mkr (26,3%), 12M 2019: 3.845 mkr (25,9%)]Sterkur tekjuvöxtur í notendabúnaði og góð afkoma í kjölfar áherslubreytinga
EBITDA* nam 381 mkr (7,8%) á fjórða ársfjórðungi og 1.245 mkr (7,3%) á árinu 2020 [F4 2019: 302 mkr (7,0%), 12M 2019: 1.006 mkr (6,8%)]152% vöxtur í netverslun
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé var neikvætt um 255 mkr á fjórða ársfjórðungi, en var jákvætt um 156 mkr á árinu [F4 2019: -351 mkr, 12M 2019: -222 mkr]Viðsnúningur hjá Hugbúnaðarlausnum á seinni helmingi árs
Heildartap nam 53 mkr á fjórða ársfjórðungi en heildarhagnaður ársins nam 408 mkr [F4 2019: Heildarhagnaður 15 mkr, 12M 2019: Heildarhagnaður 456 mkr]Góður vöxtur í tekjum áskriftavara í hugbúnaði
Eiginfjárhlutfall er 56,5% en var 57,1% í lok árs 2019Umbreytingaár fyrir rekstrarþjónustu. Skýjalausnir vaxa hraðar en miðlægir innviðir
Veltufjárhlutfall er 1,27 en var 1,34 í lok árs 219Nýjar samfélagslegar áherslur

Tekjuvöxtur Tempo er 18% á árinu. Áskriftartekjur aukast um 37% frá fyrra. Félagið er fjárhagslega sterkt og undirbúið fyrir frekari vöxt.

Jón Björnsson forstjóri Origo hf:

„Árangur Origo árið 2020 er góður og að baki er ár þar sem frábært samstillt átak starfsfólks skilar góðum rekstri í viðskiptaumhverfi sem ekkert okkar hefur upplifað áður. Tekjur félagins jukust um 15% og EBITDA* félagsins nam 1.245 mkr, sem er aukning frá fyrra ári. Mikill afkomubati er á notendalausnasviði félagsins og vel hefur tekist til að halda góðri afkomu á hugbúnaðarsviðum þess. Afkoma af rekstrarþjónustu er viðunandi miðað við breytingar í umhverfinu en aukin stærðarhagkvæmni er nauðsynleg til að bæta afkomu af slíkri þjónustu. Félagið setti heilsu og öryggi starfsfólks í forgang og vann vel í því að skapa aðstæður svo félagið mætti halda áfram góðum rekstri. Vel útfærð fjarvinnustefna og skilvirk samskipti urðu til þess að góður árangur náðist við stór innleiðingaverkefni og félagið gerði hluti sem líklega hefðu aldrei verið prófaðir við eðlilegar aðstæður.

Hluti af hugbúnaðarsviðum félagsins stóðu frammi fyrir miklum áskorunum í upphafi árs þegar tekjur frá ferðaiðnaði drógust verulega saman, en Origo hafði unnið að nokkrum nýsköpunarverkefnum í stafrænum ferðalausnum. Félagið tók stefnumarkandi ákvörðun að halda áfram að fjárfesta í ferðavörum og vera tilbúið þegar ferðaiðnaðurinn tekur við sér að nýju en starfsmenn færðust einnig yfir í verkefni þar sem meiri eftirspurn var eins og í heilbrigðislausnum og verkefnum tengdum stafrænum umbreytingum. Þannig tókst félaginu að snúa þeim rekstri við á seinni helming ársins.
Á árinu er Origo einna stoltast af verkefni tengdu landamæraskimun, sýnatöku og bólusetningum en þar var félagið í lykilhlutverki og sýndi hversu vel má treysta því að vinna flókin og umfangsmikil verkefni hratt og vel. Fyrirtækið átti einnig einstakt ár þegar kemur að innleiðingu fjárhagskerfa, bankalausna og mannauðs- og launalausna hérlendis á sama tíma og Applicon, sænskt dótturfélag Origo, átti metár í tekjum.

Sífellt fleiri viðskiptavinir sjá hag sínum betur borgið með útvistun í stað þess að reka sína eigin innviði þegar kemur að upplýsingatækni og sér Origo vaxandi eftirspurn eftir slíkri þjónustu. Miklar umbreytingar eru að eiga sér stað í rekstrarþjónustu tæknifyrirtækja í kjölfar aukinna áherslu á skýjaþjónustu. Origo leggur áherslu á að fylgja eftir þessum breytingum. Markmið félagsins er ekki að reka gagnaver, heldur að vera sterkur samstarfsaðili sem býður landfræðilegan aðskilnað á kerfum og gögnum. Origo leggur áherslu á að geta tekið við þjónustu og rekið hana fyrir viðskiptavini, hvort sem hún er hýst á Íslandi eða hjá erlendum skýjum. Samhliða er félagið í stöðugri umbótavinnu við að auka sjálfvirkni og hagkvæmni í rekstarþjónustu en mikil þörf er að ná stærðarhagkvæmni svo hægt sé að ná meira en viðunandi arðsemi af slíkri þjónustu.
Skilyrði fyrir sölu á notendabúnaði hafa verið hagfelld s.l. mánuði og skilar það, ásamt breyttum áherslum í rekstri, mjög viðunandi arðsemi á því sviði. Töluverð áskorun að tryggja búnað til viðskiptavina vegna vöruskorts á heimsvísu en þekking og sterk sambönd við samstarfsaðila gerðu gæfumun. Söluaukning notendabúnaðar er rúm 20%, annað árið í röð. Flutningur sölu frá hefðbundinni verslun yfir á netið hefur skilað 152% veltuaukningu netverslana Origo samhliða því að fjárfesting félagsins í Tölvutek á s.l. ári, og mikil þekking á hljóð- og myndlausnum skilar Origo góðum árangri.

Tempo, sem er hlutdeildarfélag Origo, hefur átt ágætt ár. Það er að einhverju leyti litað af Covid 19 en einnig af breytingum er stuðla að því að geta sett félagið í næsta vaxtarfasa. Viðskiptavinir félagsins nema nú rúmlega 20.000 fyrirtæki og undirliggjandi er góð veltaukning í áskriftartekjum og skýr áhersla á áframhaldandi tilfærslu úr miðlægum umhverfum í skýjalausn.

Við erum sátt við niðurstöðu ársins 2020. Aðstæður í kjölfar Covid 19 voru þess eðlis að fyrirtækið þurfti að aðlaga sig hratt að nýjum veruleika. Það tókst með samstilltu átaki starfsfólks. Nýjar vinnuaðstæður og breytingar á umhverfi viðskiptavina voru þess eðlis að enduhugsa þurfti allt vinnulag sem og að margar einingar tókust á við miklar breytingar á tekjusamsetningu. Finna þurfti ný tækifæri og samhliða sinna aukinni eftirspurn á fjölmörgum sviðum. Mest af þessu þurfti að eiga sér stað í fjarvinnu.

Origo hefur tekið fyrstu skref í að skerpa samfélagslegar áherslur sínar en félagið hefur mikinn hug á því að ná enn frekari árangri þegar kemur að jafnrétti kynjanna, eflingu nýsköpunnar, ábyrgri neyslu, umhverfismálum, heilsu og vellíðan starfsfólks.

Origo er spennt fyrir verkefnum 2021. Vissulega eru óvissumerki í efnahagslífinu en verkefnastaða félagins í hugbúnaði er góð og umhverfið almennt hagfellt fyrir fyrirtæki í upplýsingatækni, hvort sem eru í þróun hugbúnaðar eða sölu notendabúnaðar.“