Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Arion banki verður með útboð á nýjum sértryggðum skuldabréfaflokki, ARION CB 27, fimmtudaginn 5. maí.
ARION CB 27 er óverðtryggður skuldabréfaflokkur með föstum 5,5% vöxtum með lokagjalddaga 12. október 2027.
Útboð ARION CB 27 verður með hollensku fyrirkomulagi þar sem öll skuldabréfin verða seld á sama verði eða hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur ARION CB 22 eiga þess kost á að selja bréf í flokknum gegn kaupum á nýja flokknum ARION CB 27 á ávöxtunarkröfunni 4,0% eða hreina verðinu 100,756.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 12. maí 2022.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl 16:00 þann 5. maí 2022.