Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Vísað er í tilkynningu frá 7. janúar um útboð á grænum skuldabréfum Arion banka þann 13. janúar.
Eigendur flokksins ARION CB 22 eiga þess kost á að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í nýja flokkunum ARION 24 1020 GB á ávöxtunarkörfunni 2,91% eða hreina verðinu 102,187 m.v. uppgjör 20. janúar.
Útboðið með ARION 24 1020 GB verður með hollensku fyrirkomulagi þar sem öll skuldabréfin verða seld á sama verði eða hæsta samþykkta álagi ofan á 3 mánaða REIBOR. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl 16:00 þann 13. janúar 2022.
Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíðu bankans:
https://wwwv2.arionbanki.is/bankinn/fjarfestatengsl/skuldabrefafjarfestar/graen-skuldabref/
Í samræmi við ákvæði 2. tl. 1. mgr. 85. gr. í lögum nr. 70/2020 um skilameðferð lánastofnana( með breytingum), flokkast skuldabréf þessi sem almennar ótryggðar kröfur. Bréfin uppfylla ákvæði í grein 72b(2) í reglugerð Evrópusambandsins nr. 575/2013 um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja, að undanskildu ákvæði greinar 72b(2)(d) um undirskipan. Þessi skuldabréf flokkast því sem ótryggð skuldabréf (e. senior preferred).