Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Arion banki hf. hefur undirritað samning við Íslandsbanka hf. um að Íslandsbanki gegni áfram hlutverki viðskiptavaka á hlutabréfum útgefnum af Arion banka sem skráð eru í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland hf. með auðkennið ARION. Þessir samningar er einungis vegna hlutabréfa Arion banka sem skráð eru á Íslandi.
Samkvæmt samningnum mun viðskiptavaki daglega alla viðskiptadaga setja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Arion banka í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland áður en markaður er opnaður, að lágmarki í 175.000 hluti. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksfjöldi hluta sem viðskiptavakar eru skuldbundnir til að kaupa eða selja á hverjum degi er 875.000 hlutir.
Verðbil kaup- og sölutilboða skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni þannig að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki minna en 1,45%. Þó skal viðskiptavaka vera heimilt að fara tímabundið undir framangreint viðmið s.s. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar. Ef verðbreyting á hlutabréfum Arion banka innan dags nær 5% er Íslandsbanka heimilt að tvöfalda hámarks verðbil milli kaup- og sölutilboða tímabundið þann daginn.