Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Tilkynning þessi er birt í samræmi við 19. gr. laga um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu, nr. 20/2021, þar sem segir að hafi útgefandi hækkað eða lækkað hlutafé sitt eða fjölgað eða fækkað atkvæðum skuli hann, á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingarnar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.
Aðalfundur Arion banka hf. sem fram fór þann 16. mars 2022 samþykkti að lækka hlutafé félagsins um 150.000.000 kr. að nafnvirði, sem nemur 150.000.000 hlutum, til jöfnunar á eigin hlutum félagsins. Lækkunin var framkvæmd og tók gildi 4. apríl 2022. Hlutafé félagsins lækkaði því úr 1.660.000.000 kr. í 1.510.000.000 kr. að nafnvirði sem skiptist í jafnmarga hluti og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði.