Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Arion banki birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2022 miðvikudaginn 27. júlí, eftir lokun markaða.
Fundur/ vefstreymi fyrir markaðsaðila 28. júlí kl. 8:30
Fjárfestafundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 28. júlí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Iða Brá Benediktsdóttir aðstoðarbankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan fundi stendur í gegnum spjallþráð sem birtist fyrir neðan vefstreymið. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.